Monday, November 24, 2003

Áríðandi tilkynning!!!

akið laugardagskvöldið 20. desember frá!! þá verður svakalegt partý sem ykkur er öllum boðið í! Nánari fréttir koma síðar...



VallaTralla

Friday, November 14, 2003



Minni á Vísó á eftir, allir að skella sér í betri gallann og skemmta sér með Tuborg!

Valla

Thursday, November 13, 2003

Nú er allt að verða vitlaust!!!

Aðeins örfá sæti laus í Vísindaferðina á föstudaginn!! Drífið ykkur að skrá ykkur svo þið komist örugglega með í síðasta djamm fyrir próf! Ekki spurning!

Ef einhver kemst ekki í félagsmálaráðuneytið en langar að koma í partýið er það nottlega líka alveg sjálfsagt!

Friday, November 07, 2003

Fræðsluferðin er í dag! Fræðsluferð í fræðslumiðstöðina... (nánar um hana á aðalsíðu Padeia). Það eru örfá sæti laus í ferðina ef einhver hefur áhuga. Komast svona 2 - 3 í viðbót með. Fræðslumiðstöðin er til húsa á Fríkirkjuvegi 1, 101 Rvk, semsagt hjá tjörninni niðrí bæ, alveg við hliðini á kirkjunni. Ef þú hefur áhuga á að koma með okkur í þessa ferð, verðuru að senda póst á drifab@hi.is og fyrstu 2-3 komast þá með.

Okkur langar að hafa fræðsluferðir fastan lið hjá okkur. Fræðsluferðir eða kynningarheimsóknir, verða þá öðruvísi eðlis en vísindaferðirnar (sem við verðum að sjálfsögðu enn með). Þá munum við kíkja og skoða staði sem tegndir eru náminu. Þetta getur verið sniðugt fyrir okkur, til að skoða hvaða störf eru í boði fyrir okkur að námi loknu. Ef þið eruð með hugmyndir um staði til að kíkja á og kynnast starfseminni þar, endilega hafið samband við okkur og við skulum athuga málið. Allar tillögur vel þegnar.

Vil svo enn og aftur minna á vísindaferðina næsta föstudag.. en hún verður auglýst seinna í dag eða á morgun :)

og allir að borga skírteinin sín.

kv. Drífa

Friday, October 31, 2003

Brosdagur í dag!!!




Jæja :)

Nú er gjaldkerinn í góðu skapi :)

Nokkrir hafa greitt fyrir skírteinin sín og það er útborgunardagur í dag hjá mörgum
og því hvet ég þá sem eiga eftir að greiða sitt skírteini að gera það strax í dag :)

Aðeins litlar 1000 kr inn á reikning Padeia
Reikningsnúmerið er: 1151 - 26 - 2452
og kennitalan: 521283-0419

Kveðja Drífa
drifab@hi.is




Feedback!!!




Halló halló :)

Nú er vísindaferð á næsta leiti.. og allir á fullu að skipuleggja eitthvað í kringum það.
Okkur langar að halda smá partý fyrir ykkur eftir vísindaferðina og djamma all svakalega :) aðalmálið við að planleggja hana.. er að við vitum ekki alveg við hvað mörgum við eigum að búast.. ætli það mæti 10 manns eða 80.....???

Ég veit að mörg ykkar kíkja oft á þessar síður okkar.. ef ég minnist á eitthvað þá eruð þið búin að lesa það á síðunum okkar.... en.. mér finnst þið mættuð vera duglegri að commenta hjá okkur :)

því set ég fram eina spurningu hér.. sem ætti að vera auðsvöruð fyrir ykkur.... Langar þig að mæta í vísindaferðina og í partýið á eftir ??? Þurfið ekkert að svara neitt bindandi eða neitt þannig.. bara rétt svona til að athuga andann !!



Kveðja Drífa
drifab@hi.is

Wednesday, October 29, 2003

Hellóó allt að gerast!

7. nóvember - Farið verður í Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, klukkan 15:00! Auðvitað allir búnir að skoða auglýsingu á standinum og í póstinum og á heimasíðunni...og ákveðið að mæta...ekki satt?

14. nóvember - Vísindaferð ársins, í Félagsmálaráðuneytið! Vonumst eftir rokna mætingu og svaka djammi - nánar auglýst síðar!


22. nóvember - Ráðstefna uppeldisfræðinema!! Lesið meira um það hérna! Það er semsagt verkefni í 3. árs kúrsi að halda ráðstefnu þannig að allir BA nemar eru hvattir til að mæta. Þið eigið eftir að þurfa að halda svona og er ekki fínt að geta lært af okkar reynslu?!

og: Passið ykkur á Drífu áður en hún fer í handrukkarastellingar og sækið skírteinin ykkar ;o)

kv. Valla

Wednesday, October 22, 2003

Höfum fengið nokkrar myndir úr óvissuferðinni, skelli hérna inn nokkrum sýnishornum :o) Restin kemur inn á aðalheimasíðuna von bráðar!




Gellur!


Skemmtanastjórinn að standa undir nafni:


This page is powered by Blogger. Isn't yours?